Klassískt innan- og utanhúss
Villa Branca státar af bestu mögulegu þægindum sem mörg hver eru sérsniðin fyrir gesti okkar frá Íslandi. Allt frá móttöku gesta okkar, matseðils sem er sérsniðinn að þínum óskum ásamt skipulagningar á öllum mögulegum upplifunum, svo sem safari, kynnisferðir, bókun á allskyns afþreyingu. Við bjóðum upp á akstur til og frá flugvelli í Nairobi, Mombasa og Diani ásamt því að aðstoða við bókanir hótela þar sem við á. Bjóðum einnig upp á leiðsögumenn á þessum stöðum. Hvert einasta atriði er sérsniðið að þínum óskum.
Gisting
Svíturnar okkar eru búnar hágæðarúmum, loftkælingu, walk in sturtum og mini bar, bjartar og stílhreinar.
Sérhannaður matseðill.
Láttu kokkana okkar dekra við bragðlaukana, við notum eingöngu hágæða hráefni. Ferskt sjáfarfang og kjöt. Lífrænt grænmeti og ávexti. Þú getur einnig haft áhrif á matseðilinn hverju sinni.
Vellíðan og slökun.
Í litlu heilsulindinni okkar geturðu fengið nudd að eigin vali, snyrtifræðingur kemur á staðinn þegar þér hentar, þá er einnig boðið uppá jógatíma og einkaþjálfun.
Fitness tímar.
Við bjóðum upp á einkatíma með jógakennurum og einkaþjálfurum að óskum hvers og eins. hvort sem er í gyminu okkar eða á sundlaugarbakkanum.
Gym.
Í Villa Branca er gym með helstu tækjum en einnig eru bæði frábærar göngu og hlaupaleiðir í nágrenni okkar, það eru eingöngu 10 mínútna gangur niður á strönd.
Stóru stundir lífsins.
Fagnaðu stóru stundunum með vinum og fjölskyldu í þessari Paradís. Við hjálpum til með alla skipulagningu fyrir viðburði og einnig með að plana heildarferðina.
Bókaðu Ljón Suite – Villa Branca
Villa Branca státar af úrvali af fyrsta flokks þægindum sem eru sniðnar að þörfum kröfuharðustu gesta. Allt frá persónulegri þjónustu móttökustjóra til dekurmeðferða í heilsulindinni er boðið upp á sem…
Frá $245 Á dag/nótt